Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 03. ágúst 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Cristiano Ronaldo: Nú er komið að þriðja titlinum
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo verður áfram hjá Ítalíumeisturum Juventus á næsta ári en hann hefur verið markahæsti leikmaður liðsins frá komu sinni fyrir tveimur árum.

Ronaldo gerði 21 mark á sínu fyrsta deildartímabili í Serie A og náði svo að skora 31 mark á nýliðnu tímabili. Hann var orðaður við endurkomu til Real Madrid og félagaskipti til PSG eða Newcastle.

„Ég er ánægður að hafa unnið tvo af síðustu níu Serie A titlum Juventus! Þetta virðist auðvelt en er það ekki!" skrifaði Ronaldo á Instagram og sparaði ekki upphrópunarmerkin.

„Með hæfileikum, dugnaði og metnaði getur þú náð markmiðum þínum ár eftir ár og bætt þig sem leikmann!

„Nú er komið að þriðja titlinum mínum."

Athugasemdir
banner
banner
banner