02.09.26 - 19:26
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Cecilía og Karólína í Meistaradeildina eftir mikla dramatík

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Cecilía Rán Rúnarsdóttir var í markinu og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir spilaði klukkutíma þegar Inter fékk Wolfsburg í heimsókn. Inter tapaði fyrri leiknum 2-0 og vann upp forystu Wolfsburg í kvöld.
Staðan var 2-0 eftir 90 mínútur og það þurfti því að framlengja. Wolfsburg skoraði og komst yfir í einvíginu en Inter skoraði í uppbótatíma og kom sér í vítaspyrnukeppni. Þar hafði Inter betur og er komið í Meistaradeildina.
Emelía Óskarsdóttir byrjaði á bekknum þegar Koge fékk PSV í heimsókn í seinni leik liðanna í leik um sæti í Meistaradeild kvenna. Koge vann fyrri leikinn 1-0.
Koge náði forystunni strax í upphafi seinni hálfleiks í kvöld en PSV jafnaði eftir klukkutíma leik. Emelía kom inn á þegar rúmur stundafjórungur var til loka venjulegs leiktíma.

Fleiri mörk urðu ekki skoruð og Koge vann einvígið 2-1 og tryggði sér sæti í deildarkeppni Meistaradeildarinnar.
Hafrún Rakel Halldórsdóttir var ekki með Bröndby þegar liðið komst örugglega áfram í Evrópubikarnum eftir 4-1 sigur á Subotica. Fyrri leiknum lauk með 5-0 sigri. Þá var Selma Sól Magnúsdóttir á bekknum hjá Rosenborg sem vann 3-0 sigur á SeaSters Odesa, samanlagt 3-1.
Arna Eiríksdóttir spilaði fyrri hálfleikinn í 7-1 sigri Valerenga gegn Raadomlje en norska liðið vann viðureignina samanlagt 9-1.
Vigdís Lilja Kristjánsdóttir kom inn á sem varamaður þegar Anderlecht tapaði 3-1 gegn Feyenoord og tapaði einvíginu 4-3. Andrea Rut Bjarnadóttir var ónotaður varamaður.