Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fim 03. desember 2020 12:48
Magnús Már Einarsson
Pálmi gerir atvinnumannasamning við Wolves
Mynd: Hulda Margrét
Markvörðurinn Pálmi Arinbjörnsson hefur skrifað undir atvinnumannasamning hjá Wolves.

Pálmi kom til Wolves frá Njarðvík fyrr á þessu ári en þá gerði hann unglingasamning við félagið.

Eftir góða frammistöðu með U17 og U18 ára liði Wolves hefur hinn 17 ára gamli Pálmi skrifað undir atvinnumannasamning.

„Pálmi hefur staðið sig mjög vel síðan hann kom til okkar," segir Steve Davis þjálfari U18 ára liðs Wolves.

„Við erum ánægðir með staðinn sem Pálmi er á en núna þegar hann er kominn með nýjan samning þá heldur hann vonandi áfram að bæta frammistöðu sína og verða betri markvörður."

Pálmi á fimm leiki að baki með U16 ára landsliði Íslands og tvo leiki með U17 ára landsliðinu.

Sjá einnig:
Hin hliðin - Pálmi Rafn Arinbjörnsson (Ágúst 2020)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner