04.03.18 - 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Garry Monk tekinn við Birmingham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Garry Monk er nýr knattspyrnustjóri Birmingham City í Championship deildinni.
Monk skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við félagið sem rennur út sumarið 2021.

Monk er ráðinn til að koma í veg fyrir fall Birmingham, en liðið er búið að tapa sex leikjum í röð, fimm í deildinni.
Birmingham er í fallsæti, tveimur stigum frá öruggu sæti, þegar ellefu umferðir eru eftir.
Monk verður 39 ára í vikunni og hefur gríðarlega mikla reynslu að baki sem leikmaður eftir að hafa verið hjá Swansea í tíu ár.
Monk lagði skóna á hilluna 2014 og hefur síðan þá stýrt Swansea, Leeds og Middlesbrough við þokkalegan orðstír.