04.04.18 - 17:30
Magnús Már Einarsson
Daníel Steinar og Miroslav Babic í Hött (Staðfest)

Daníel Steinar Kjartansson.

Mynd: Höttur

Daníel Steinar Kjartansson.

Mynd: Höttur
Höttur hefur fengið tvo nýja leikmenn til liðs við sig fyrir sumarið í 2. deildinni.
Miroslav Babic er djúpur miðjumaður, kemur úr Serbnesku deildinni og eru bundnar miklar væntingar við hann en hann hefur spilað áður undir stjórn Nenad Zivanovic þjálfara Hattar.
Daníel Steinar Kjartansson kemur til Hattar á láni frá Fylki en góð tengsl hafa verið á milli Fylkis og Hattar síðustu ár. Daníel getur spilað nokkrar stöður þar á meðal bakvörð og kant.
„Ljóst er að talsvert miklar breytingar verða á leikmannahópi Hattar á milli tímabila en útlit er fyrir að átta leikmenn sem spiluðu með liðinu í fyrra verði ekki með liðinu í sumar. Það þýðir enn fleiri tækifæri fyrir unga leikmenn.\" segir í fréttatilkynningu frá Hetti.
Aðspurður segir Guðmundur Bj Hafþórsson formaður rekstrarfélags Hattar að félagið fái mögulega til sín tvo leikmenn til viðbótar fyrir mót en það verði að koma í ljós.

Miroslav Babic.

Mynd: Höttur