04.04.18 - 15:06
Magnús Már Einarsson
Oliver Sigurjóns í Breiðablik (Staðfest)

Oliver Sigurjónsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Oliver Sigurjónsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik hefur fengið miðjumanninn Oliver Sigurjónsson á láni frá Bodö/Glimt í Noregi en þetta staðfesti hann í samtali við Akraborgina á X-inu.
Oliver fór til Bodö/Glimt um mitt síðasta tímabil en lék einungis 26 mínútur þar sem meiðsli settu stórt strik í reikninginn.
„Það veit eiginlega enginn nákvæmlega hvað þetta er. Þetta er eitthvað bak við nárann og það er enn meira pirrandi að vera í þessari óvissu,\" sagði Oliver í viðtali í útvarpsþætti Fótbolta.net í janúar en hann var þá ennþá meiddur.
Oliver er nú byrjaður að æfa á nýjan leik en hann var ónotaður varamaður í fyrsta leik í norsku úrvalsdeildinni á dögunum.

Hann hefur síðan ekki verið í leikmannahópnum í síðustu tveimur umferðum.
Oliver er nú mættur til Spánar þar sem Breiðablik er í æfingaferð þessa dagana til undirbúnings fyrir Pepsi-deildina en fyrsti leikur liðsins þar er gegn Breiðabliki 28. apríl.
Komnir:
Arnór Gauti Ragnarsson frá ÍBV
Guðmundur Böðvar Guðjónsson frá ÍA
Jonathan Hendrickx frá Leixoes
Oliver Sigurjónsson frá Bodö/Glimt á láni
Farnir:
Dino Dolmagic
Ernir Bjarnason í Leikni R.
Guðmundur Friðriksson í Þrótt R.
Hlynur Örn Hlöðversson til Njarðvíkur á láni
Kristinn Jónsson í KR
Martin Lund Pedersen í Næsby
Sólon Breki Leifsson í Vestra
Þórður Steinar Hreiðarsson í Kórdrengina