Fotbolti.net
04.04.18 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Sjö leikmenn skrifa undir hjá Fjarðabyggð (Staðfest)

Sjö leikmenn skrifa undir hjá Fjarðabyggð (Staðfest)
Canon

Mynd: Aðsend

Kvennaboltinn
Sjö leikmenn kvennaliðs Fjarðabyggðar skrifuðu undir samninga við félagið í gær.

Stelpurnar eru ungar og allar nema tvær að stíga sín fyrstu skref með meistaraflokki.
Kamilla Dögg Hilmisdóttir, Bríet Sigurjónsdóttir og Hafdís Ágústsdóttir eru allar fæddar 2002 og hafa aldrei spilað leik fyrir meistaraflokk.

Elísa Björg Sindradóttir og Eva Björk Björgvinsdóttir eru fæddar 2001 og eiga enga meistaraflokksleiki að baki.

Þær eru tvær sem skrifuðu undir sem eiga reynslu að baki. Katrín Björg Pálsdóttir er fædd 1999 og hefur leikið 44 leiki fyrir Fjarðabyggð undanfarin ár.

Jóhanna Lind Stefánsdóttir er fædd 2001 og lék 8 leiki fyrir liðið síðasta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.