Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 04. apríl 2020 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Xavi og eiginkona hans gefa 1 milljón evra
Xavi og Messi hafa báðir lagt sjúkrahúsinu lið.
Xavi og Messi hafa báðir lagt sjúkrahúsinu lið.
Mynd: Getty Images
Barcelona goðsögnin Xavi og eiginkona hans, Nuria Cunillera, hafa gefið 1 milljón evra, eða um 156 milljónir íslenskra króna, til Hospital Clínic sjúkrahússins í Barcelona.

Xavi og Nuria ætla sér með þessu framlagi að hjálpa til við að berjast gegn kórónuveirunni, en ástandið hefur verið mjög slæmt á Spáni síðustu vikurnar.

Sjúkrahúsið þakkaði hjónunum fyrir framlagið á samfélagsmiðlum sínum. Lionel Messi gaf sama spítala sömu upphæð í síðasta mánuði.

Xavi er einn besti miðjumaður sem uppi hefur verið. Hann lék með aðalliði Barcelona frá 1998 til 2015. Þá fór hann til Katar þar sem hann er enn í dag sem þjálfari Al Sadd.

Athugasemdir
banner
banner
banner