Rogers opinn fyrir því að fara frá Villa - Leipzig setur verðmiða á Diomande - Grealish áfram hjá Everton?
banner
   lau 04. apríl 2026 09:00
Kári Snorrason
Segir Kjartan verða að eiga fullkomið tímabil
FH endaði í 6. sæti á síðasta tímabili.
FH endaði í 6. sæti á síðasta tímabili.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
„Ef Kjartan Kári á ekki fullkomið tímabil, þá getur þetta orðið hræðilegt tímabil hjá FH“
„Ef Kjartan Kári á ekki fullkomið tímabil, þá getur þetta orðið hræðilegt tímabil hjá FH“
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH var spáð 9. sæti í spá Fótbolta.net sem birt var í síðustu viku, en liðið hefur misst stóra pósta frá síðasta tímabili. Þar ber helst að nefna Sigurð Bjart Hallson og Björn Daníel Sverrisson sem skoruðu samanlagt 24 mörk á síðustu leiktíð.

Samhliða því hefur félagið kynnt nýja stefnu undir stjórn Jóhannesar Karls Guðjónssonar, sem tók við liðinu fyrr í vetur.

Í Besta spjallinu hér á Fótbolta.net var rætt um stöðu FH og voru þeir Jón Þór Hauksson, Damir Muminovic og Guðmundur Benediktsson með áhyggjur af stöðunni í Kaplakrika.

„Það er verið að umturna öllu og boða nýja stefnu, bæði í leikmannamálum og í leikstíl liðsins. Maður hefur auðvitað áhyggjur af því að við höfum ekki mikla reynslu á Íslandi með svona stöðu eins og yfirmaður fótboltamála (e. Sport director). Klúbbarnir hafa ekkert mikla reynslu af því að vinna hlutina svona ítarlega niður í þessum tölvukerfum öllum og að byggja og búa til lið í kringum þessi öpp,“ sagði Jón Þór og Gummi Ben tók orðið.

„Þetta er félag sem vann þetta allt, fyrir ekkert svo mörgum árum. Var bara langbesta félagið á Íslandi. Stuðningsmenn FH voru pirraðir undanfarin ár, líka undir stjórn Heimis, að þeir væru ekki að keppa við bestu liðin. Þá voru þeir hins vegar með lið í efri hlutanum, með Heimi þrátt fyrir að mannskapurinn hafi kannski ekki verið af því kalíberi.“

„Núna er Björn Daníel, Böddi, Faqa og Siggi Hall sem var þeirra aðalmaður á síðasta tímabili, fyrir utan einn mann. Sem er Kjartan Kári. Hann stendur þarna í raun og veru einn eftir. Ef Kjartan Kári á ekki fullkomið tímabil, þá getur þetta orðið hræðilegt tímabil hjá FH,“ sagði Guðmundur og Jón Þór tók við.

„Það sem að ég held að verði stærsta áskorunin hjá FH er: Hvað gerist utan vallar ef hlutirnir ganga ekki upp? Hversu sterkir eru þeir til að bakka allar þessar breytingar og Jóa Kalla upp? Mögulega mun taka sársaukafullan tíma að gera þetta,“ sagði Jón Þór.

„Það er rosalega erfitt að fara í svona stefnubreytingar allt í einu. Þetta tekur tíma; þrjú, fjögur ár,“ sagði Damir að lokum.
Besta spjallið - Horfðu á upphitunarþáttinn í mynd
Besta spjallið: Damir, Jón Þór og Gummi Ben rýna í liðin
Slapp
banner
banner