Landsliðsmarkvörðurinn Telma Ívarsdóttir verður ekki áfram hjá ítalska stórliðinu Inter eftir lánsdvöl þar frá Rangers í Skotlandi.
„Ég er bara samningsbundin Rangers og þangað til annað kemur í ljós er ég leikmaður þeirra," sagði Telma við Fótbolta.net í gær.
„Ég er bara samningsbundin Rangers og þangað til annað kemur í ljós er ég leikmaður þeirra," sagði Telma við Fótbolta.net í gær.
Telma var varamarkvörður á eftir Cecilíu Rán Rúnarsdóttur hjá Inter en hún naut tímans mikið á Ítalíu.
Telma, sem fagnaði 27 ára afmæli sínu í síðasta mánuði, var áður á mála hjá Breiðabliki og var hún í viðtalinu spurð að því hvort heimkoma væri möguleg í sumar.
„Nei, ég held ekki. Allavega ekki strax," sagði Telma.




