Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
banner
   fim 04. júní 2026 22:20
Ívan Guðjón Baldursson
Riquelme: Búnir að tala við umboðsmann Rodri
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Enrique Riquelme er í forsetaframboði hjá Real Madrid og lét opinber ummæli falla um Erling Haaland og Rodri, leikmenn sem eru samningsbundnir Manchester City, á dögunum.

Riquelme sagðist ætla að fá þá til Real Madrid ef hann næði kjöri sem næsti forseti stórveldisins. Man City brást við með að hóta lögsókn og var Riquelme spurður út í málið í spænskum fjölmiðlum.

   04.06.2026 07:30
Man City skoðar lögsókn gegn Riquelme


„Við höfum talað við umboðsmann Rodri og okkur er ljóst að við eigum eftir að ræða við Man City um kaupverð. Ég sagði það líka í gær," sagði Riquelme við AS.

„Það eru mismunandi aðstæður í kringum Rodri og Haaland, en það er ljóst að við þurfum að fara í viðræður við City til að geta keypt leikmennina. Við berum fulla virðingu fyrir félaginu."

Riquelme var áður búinn að lofa því að hann myndi persónulega greiða ársgjald allra 100 þúsund meðlima Real Madrid klúbbsins ef honum tækist ekki að standa við gefin loforð um að krækja í Haaland, Rodri og heimsklassa þjálfara í sumarglugganum.

   04.06.2026 19:30
Rodri tekur ákvörðun eftir HM

Slapp
banner
banner