Cecilía Rán Rúnarsdóttir hefur alla burði til að verða einn besti markvörður heims.
Cecilía, sem er 22 ára gömul, var að klára sitt annað tímabil með ítalska stórliðinu Inter og er einn öflugasti markvörðurinn í deild þeirra bestu á Ítalíu.
Cecilía, sem er 22 ára gömul, var að klára sitt annað tímabil með ítalska stórliðinu Inter og er einn öflugasti markvörðurinn í deild þeirra bestu á Ítalíu.
LIðsfélagi hennar hjá Inter, Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, hrósaði henni í hástert í viðtali við Fótbolta.net í vikunni. Þær eru núna í landsliðsverkefni í Kraká í Póllandi en framundan er mikilvægur leikur gegn Úkraínu í undankeppni HM.
„Maður getur ekki hrósað henni nóg," sagði Karólína um Cecilíu.
„Þvílíkur markvörður sem hún er orðin og bara það sem hún verður ef hún helst meiðslalaus, þá held ég að hún verði ein sú besta."
Cecilía er aðalmarkvörður landsliðsins og verður í eldlínunni gegn Póllandi á morgun.

