Nú þegar Besta deildin er rétt tæplega hálfnuð og í fríi þá er vel við hæfi á að líta á þá leikmenn sem þurfa að stíga upp eftir landsleikjahléið.
Fótbolti.net hefur tekið saman lista yfir tíu leikmenn sem þurfa að stíga upp á komandi misserum.
Þá er litið til væntingar fyrir tímabil, mikilvægi leikmanns fyrir liðið og frammistöður.
Fótbolti.net hefur tekið saman lista yfir tíu leikmenn sem þurfa að stíga upp á komandi misserum.
Þá er litið til væntingar fyrir tímabil, mikilvægi leikmanns fyrir liðið og frammistöður.
Danijel Dejan Djuric (KA) - Hann var keyptur dýrum dómi til KA frá Króatíu en hefur ekki staðið undir væntingum til þessa. Hann á enn eftir að koma að marki í deildinni og KA þarf að ná að koma honum í gang.
Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðablik) - Þrátt fyrir að hafa ekki verið slakur á tímabilinu hefur Höskuldur ekki náð þeim hæðum sem áhorfendur hafa vanist frá honum. Hann hefur verið að glíma við meiðsli sem gætu spilað þar inn í.
Sigfús Fannar Gunnarsson (Þór) - Markahæsti og besti leikmaður Lengjudeildarinnar í fyrra en hefur ekki komið að marki í ár. Þórsarar hafa aðeins skorað sjö mörk og er lykilatriði fyrir þá að ná Sigfúsi á skrið. Hann hefur verið að glíma við meiðsli og hefur því komið minna við sögu en skyldi.
Árni Snær Ólafsson (Stjarnan) - Eftir gott síðasta tímabil hefur Árni verið langt frá sínu besta í ár. Hefur stundum tekið upp á því að skutla sér ekki sem margir hafa furðað sig á. Fær að meðaltali á sig 2.2 mörk í leik.
Birnir Snær Ingason (Stjarnan) - Eftir að hafa byrjað tímabilið frábærlega þá hefur fjarað hratt undan þessu hjá Birni. Hefur ekki komið að marki síðan í þriðju umferð.
Kjartan Kári Halldórsson (FH) - Sem lykilmaður FH verður hann að taka meira til sín. Hann hefur ekki fengið mikla hjálp frá liðsfélögum sínum og biðja FH-ingar eflaust til guðs um að hann stígi upp og komi liðinu úr þeim vandræðum sem það er í.
Vicente Valor (ÍBV) - Einn af lykilmönnum ÍBV sem hefur ekki náð sér á strik. Útlitið er þó bjartara fyrir Eyjamenn eftir síðustu tvo leiki og ef ÍBV ætlar að halda sér í deildinni verður Valor að stíga upp.


