04.07.12 - 06:00
Elvar Geir Magnússon
Dodo í Roma (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Roma á Ítalíu hefur fengið varnarmanninn Dodo frá Corinthians í Brasilíu. Þessi tvítugi leikmaður hefur skrifað undir fimm ára samning.
Dodo heitir fullu nafni Jose Rodolfo Pires Ribeiro.
Dodo heitir fullu nafni Jose Rodolfo Pires Ribeiro.
Frá því að Dodo var sautján ára hefur hann reglulega verið orðaður við Manchester United. Á tímabili virtist hann vera kominn í raðir United en FIFA kom þá í veg fyrir félagaskiptin vegna ungs aldurs leikmannsins.
Dodo er vinstri bakvörður og meiddist hann illa á hné í nóvember 2011 en er nú búinn að finna fyrrum form samkvæmt ítölskum fjölmiðlum.
Dodo er vinstri bakvörður og meiddist hann illa á hné í nóvember 2011 en er nú búinn að finna fyrrum form samkvæmt ítölskum fjölmiðlum.
