Fotbolti.net
04.07.12 - 11:35
Elvar Geir Magnússon

Gylfi Þór Sigurðsson til Tottenham (Staðfest)

Gylfi Þór Sigurðsson til Tottenham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham hefur staðfest á heimasíðu sinni að félagið hafi fest kaup á Gylfa Sigurðssyni.

„Það er okkur mikil ánægja að tilkynna það að við höfum gengið frá kaupum á Gylfa Sigurðssyni frá Hoffenheim,\" segir í yfirlýsingu frá Tottenham.
Gylfi lék frábærlega með Swansea seinni hluta síðasta tímabils eftir að hafa komið á lánssamningi frá Swansea City. Hann skoraði sjö mörk í 19 leikjum ásamt því að hann var valinn leikmaður mánaðarins í mars.

Í sumar var útlit fyrir það að Swansea væri að tryggja sér áframhaldandi þjónustu Gylfa en eftir að Brendan Rodgers fór til Liverpool bjuggust flestir við því að hann myndi fylgja honum þangað.

Gylfi flokkast því sem fyrstu kaup Andre Villas-Boas hjá Tottenham en Portúgalinn var tilkynntur sem knattspyrnustjóri félagsins í gær.

Fótbolti.net mun færa ykkur frekari fréttir af þessum félagaskiptum í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.