Fotbolti.net
04.07.12 - 19:38
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Lucio til Juventus (Staðfest)

Lucio til Juventus (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski varnarmaðurinn Lucio hefur skrifað undir tveggja ára samning við ítalska liðið Juventus.
Lucio, sem er 34 ára gamall hefur verið á mála hjá Inter Milan undanfarin ár, en hann var leystur undan samningi í sumar hjá þeim og ákvað hann því að finna sér nýtt félag, þar sem hann freistir þess að komast í brasilíska landsliðið fyrir HM sem fer fram þar í landi árið 2014.

Hann var ekki lengi að finna sér félag, en hann er genginn til liðs við ítalska meistaraliðið Juventus. Hann stóðst læknisskoðun í morgun og hefur í kjölfarið skrifað tveggja ára samning við félagið.

Það er nóg að gera hjá Juventus í sumar, en liðið hefur þegar fengið auk Lucio, þá Kwadwo Asamoah, Mauricio Isla, Paul Pogba, Martin Caceres og Nicola Leali.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.