Fotbolti.net
04.07.12 - 20:14
Brynjar Ingi Erluson

Elie Baup tekinn við Marseille (Staðfest)

Elie Baup tekinn við Marseille (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Franska stórliðið Marseille hefur ráðið Elie Baup sem nýjan þjálfara liðsins, en þetta var staðfest í dag.
Didier Deschamps yfirgaf Marseille fyrir tveimur dögum síðan eftir að hafa þjálfað liðið undanfarin ár, en hann gerði liðið meðal annars að frönskum meisturum á tíma sínum hjá félaginu.

Félagið var ekki lengi að ráða nýjan þjálfara í stað fyrir hann, en Elie Baup var kynntur sem nýr þjálfari liðsins í dag.

Baup, sem er 57 ára gamall hefur ekki verið í þjálfun frá árinu 2009 er hann var rekinn frá Nantes. Hann vann þá frönsku deildina með Bordeaux árið 1999 og gerði magnaða hluti með Toulouse fyrir fimm árum síðan þegar hann kom liðinu í undankeppni Meistaradeildar Evrópu.

Heimild: Soccerway

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.