Newcastle hefur áhuga á Armando Broja sem er framherji Chelsea. Broja var á láni hjá Southampton á síðasta tímabili og stóð sig vel.
Newcastle vill fá Broja á láni en Chelsea vill fyrst meta stöðuna í sumar, sjá Broja á undirbúningstímabilinu, áður en ákvörðun með framtíð Albanans verður ákveðin.
Newcastle vill fá Broja á láni en Chelsea vill fyrst meta stöðuna í sumar, sjá Broja á undirbúningstímabilinu, áður en ákvörðun með framtíð Albanans verður ákveðin.
Chelsea lánaði á dögunum Romelu Lukaku frá sér og er ekki með mjög marga kosti í framherjastöðuna.
Southampton og West Ham hafa einnig áhuga á því að fá Broja í sínar raðir. Hinn tvítugu Broja skoraði níu mörk í 38 leikjum með Southampton.
Uppfært 15:23: Sky Sports segir að Everton hafi blandað sér í baráttuna um Broja.
Athugasemdir