04.08.03 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Kanoute kominn til Tottenham. (Staðfest)
Tottenham hafa gengið frá 4,5 milljóna kaupum á Frederic Kanoute framherja West Ham. Kanoute komst í gegnum læknisskoðun hjá félaginu í dag eftir að félögin höfðu komist að samkomulagi um söluna en samkvæmt henni mun Mannhew Etherington miðvallarleikmaður Tottenham fara til West Ham. Kanoute verður þriðji leikmaðurinn til að ganga til liðs við Spurs í sumar. Hinir voru Helder Postiga sem kostaði 6,25 milljónir punda og Bobby Zamora sem kostaði 1,5 milljónir.
