04.08.03 - 00:00
Roy Makaay til Bayern. (Staðfest)
Forráðamenn Deportivo La Coruna gáfu það út í dag að liðið hefði samþykkt tilboð frá Bayern Munchení hollenska framherjann Roy Makaay. Samningaviðræður hafa verið bæði langar og strangar og mikið borið á milli, en Depor setti 21 milljón evra á leikmanninn en Bayern vildi ekki greiða meira en 17. Kaupverðið hefur ekki enn verið gefið upp en það mun líklegast spyrjast út á næstu dögum.
Umboðsmaður Roy sagði leikmanninn hinn kátasta með félagsskiptin en framherjinn hefur ekki farið leynt með áhuga sinn á að skipta um starfsvetvang.
