04.08.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Roger til Villareal. (Staðfest)
Villareal hefur fengið Roger García frá Espanyol. Hann kemur frítt en samningur örfætta miðjumannsins við Espanyol rann út 31.júlí. Hann skrifaði undir 2 ára samning en hann er fjórði leikmaðurinn sem kemur til Villareal í sumar. Hinir eru:Sonny Andersson frá Lyon, Jose Mari og Fabricio Coloccini báðir frá AC Milan, sá síðari á lánssamningi. Stjóri Villareal Benito Floro mun líklega ekki kaupa fleiri leikmenn í sumar en þó er aldrei að vita hvað gerist í þeim efnum.
