Fotbolti.net
04.10.17 - 11:30
Magnús Már Einarsson
Skrifar frá: Antalya í Tyrklandi

Gylfi: Stuðningsmenn fljótir að snúast gegn þeim

Auglýsing
Gylfi Þór Sigurðsson.

Gylfi Þór Sigurðsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
„Þetta er sterkt lið sem við erum að spila á móti og þeir eru góðir á heimavelli,\" sagði Gylfi Þór Sigurðsson við Fótbolta.net í dag um stórleikinn sem er framundan gegn Tyrkjum á föstudag.

„Ef við byrjum leikinn vel og náum að pirra þá, þá eru stuðningsmenn þeirra fljótir að snúast gegn þeim. Það er okkar markmið í fyrri hálfleik.\"
Tyrkir verða að vinna leikinn til að eiga möguleika á að fara áfram á mðena

„Við vitum að þeir munu sækja mikið ef staðan er 0-0, 1-1 eða við erum 1-0 yfir. Þeir verða að vinna leikinn. Þeir munu taka sénsa og sækja mikið og það opnar leikinn. Það gæti hentað okkur vel.\"

Gylfi hefur spilað fremst á miðjunni í síðustu landsleikjum en hann gæti spilað aftar gegn Tyrkjum þar sem Emil Hallfreðsson er í banni og Aron Einar Gunnarsson er tæpur.

„Ég spila þar sem Heimir vill að ég spili. Auðvitað er skemmtilegra að vera í aðeins meira sóknarhlutverki en það skiptir litlu máli. Ég er vanur því að spila á miðjunni með landsliðinu og er tilbúinn í það,\" sagði Gylfi.

Sjá einnig:
Gylfi: Hef séð það svartara en þetta
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.