Stefán Ingi á skotskónum - Lúkas í marki Hoffenheim

Stefán Ingi skoraði eina mark Go Ahead Eagles

Mynd: GAE

Lúkas Petersson spilaði seinni hálfleikinn hjá aðalliði Hoffenheim

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Íslensku atvinnumennirnir voru í eldlínunni víða á undirbúningstímabilinu í dag og þá léku tveir þeirra einnig í skandinavísku úrvalsdeildunum.
Viðar Ari Jónsson var í byrjunarliði HamKam sem tapaði 4-1 fyrir Tromso í norsku úrvalsdeildinni. Hann fór af velli á 78. mínútu. HamKam er í 6. sæti deildarinnar með 18 stig.
Róbert Frosti Þorkelsson var að venju í byrjunarliði GAIS sem tapaði 2-0 fyrir AIK í sænsku úrvalsdeildinni. GAIS er í 7. sæti með 19 stig.
Kristian Nökkvi Hlynsson byrjaði hjá Twente sem gerði 2-2 jafntefli við Gent. Hollenski landsliðsmaðurinn Wout Weghorst skoraði fyrra mark Twente.
Brynjólfur Andersen Willumsson var í byrjunarliði Groningen sem tapaði 2-1 fyrir Grikklandsmeisturum AEK.
Bróðir hans, Willum Þór, lék á sama tíma með NEC Nijmegen sem vann 7-0 stórsigur á Al Fayha frá Sádi-Arabíu.
Guðlaugur Victor Pálsson var í vörn Horsens sem tapaði 1-0 fyrir Vendsyssel. Þetta var síðasti æfingaleikur liðsins fyrir dönsku úrvalsdeildina, sem hefst hjá Horsens gegn Nordsjælland 26. júlí.
Lúkas Petersson lék síðari hálfleikinn í marki Hoffenheim sem vann Freiberg 3-0.
Lyngby vann 5-1 stórsigur á Hillerod í leik þar sem leiknar voru þrisvar sinnum 45 mínútur. Ísak Snær Þorvaldsson og Daníel Freyr Kristjánsson voru báðir í liði Lyngby, en Jakob Gunnar Sigurðsson lék með Hillerod. Hann gekk í raðir félagsins á láni frá Lyngby á dögunum.
Stefán Ingi Sigurðarson skoraði eina mark Go Ahead Eagles í 2-1 tapi gegn Lommel. Alfons Sampsted lék fyrri hálfleikinn en Stefán þann síðari.
Davíð Kristján Ólafsson var í byrjunarliði Polonia Warszawa sem vann Zawisza 3-2.
Breki Baldursson og félagar í Esbjerg töpuðu 1-0 fyrir Fredericia, en Breki hóf leik á varamannabekknum.