Rooney segir aðeins einn mann koma til greina verði Tuchel rekinn

Wayne Rooney væri til í Pep Guardiola

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Wayne Rooney væri til í Pep Guardiola

Mynd: EPA
Wayne Rooney, fyrrum leikmaður Manchester United og enska landsliðsins, er á því að enska fótboltasambandið eigi að halda Thomas Tuchel áfram sem landsliðsþjálfara, nema það geti sannfært Pep Guardiola um að taka við.
Enska landsliðið féll úr leik í undanúrslitum HM eftir sárt 2-1 tap gegn ríkjandi heimsmeisturum Argentínu.
Leikskipulag Englendinga gekk lengi vel upp og liðið komst yfir snemma í síðari hálfleik. Eftir markið færðu þeir sig hins vegar aftar á völlinn og gáfu Argentínumönnum frumkvæðið.
Thomas Tuchel gerði jafnframt nokkrar varnarbreytingar sem reyndust Englendingum dýrkeyptar þegar upp var staðið.
Wayne Rooney ræddi frammistöðuna í þætti sínum, The Wayne Rooney Show. Hann sagði að toppþjálfarar á borð við Tuchel lærðu af mistökum sínum og að Þjóðverjinn ætti líklega skilið að halda áfram með liðið. Rooney nefndi þó einn mann sem kæmi til greina ef enska fótboltasambandið vildi gera breytingu.
„Ég sé í raun engan annan kost í augnablikinu, nema þeir fari og sæki Pep Guardiola. Ef hann er laus væri alls ekki vitlaust að fá hann.“
„Tuchel er toppþjálfari og slíkir þjálfarar læra af mistökum sínum, bæta sig og verða betri. Hvern eigum við annars að fá ef við rekum hann? Það er enginn þarna úti sem er jafn góður og Tuchel, nema auðvitað Guardiola.“
„Það stærsta og mikilvægasta í þessu er að Tuchel hafði enga reynslu af HM. Við sáum nákvæmlega það sama með Fabio Capello. HM er allt annað dýr og menn þurfa að fá smjörþefinn af þessu umhverfi. Tuchel hefur nú fengið þá reynslu,“ sagði Rooney.