Fotbolti.net
18.07.26 - 15:59
Brynjar Ingi Erluson

Lengjudeildin: Sextán ára með tvö mörk í stórsigri Gróttu - Markalaust í Grindavík

Mattías Kjeld er aðeins 16 ára gamall en hefur nú skorað fimm í síðustu sex leikjum

Mattías Kjeld er aðeins 16 ára gamall en hefur nú skorað fimm í síðustu sex leikjum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Grótta pakkaði nýliðum Ægis saman, 6-1, í Lengjudeild karla í dag. Á sama tíma skildu Grindavík og ÍR jöfn eftir markalausan leik.
Sumarið hefur reynst Ægi erfitt, en liðið hefur aðeins unnið tvo leiki á tímabilinu og fengið á sig fjölda marka að undanförnu. Lekinn hélt áfram gegn Gróttu í dag.

Grótta var komin í 4-0 í hálfleik. Nökkvi Már Nökkvason braut ísinn á 12. mínútu þegar hann fylgdi eftir hornspyrnu og afgreiddi lausan bolta í netið.

Mattías Kjeld bætti við tveimur mörkum á átján mínútum. Hann slapp í gegn og skoraði á 14. mínútu áður en hann bætti öðru marki við með snyrtilegri afgreiðslu á 32. mínútu.

Mattías er aðeins 16 ára gamall en er engu að síður kominn með átta mörk í deildinni á tímabilinu.

Björgvin Brimi Andrésson skoraði fjórða mark Gróttu á 37. mínútu. Hann fékk boltann í hlaupinu og skot hans fór af varnarmanni og í netið.

Vont varð verra fyrir Ægi í upphafi síðari hálfleiks þegar Daníel Karl Þrastarson hreinsaði boltann í eigið net. Hann bætti þó fyrir mistökin tuttugu mínútum síðar með laglegu marki.

Jónatan Ari Bragason rak síðan smiðshöggið á stórsigurinn með skalla eftir hornspyrnu og 6-1 sigur Gróttu varð niðurstaðan.

Grótta er í 5. sæti deildarinnar með 22 stig en Ægir situr áfram á botninum með átta stig.

Grindavík og ÍR gerðu á sama tíma markalaust jafntefli í tíðindalitlum leik á Stakkavíkurvelli.

ÍR-ingar björguðu á línu eftir skalla Damirs Muminovic í kjölfar hornspyrnu, en gestirnir náðu síðan betri tökum á leiknum þegar leið á fyrri hálfleikinn.

Grindvíkingar færðu sig hins vegar framar á völlinn á lokakaflanum og fóru að banka fastar á dyrnar. Ingi Þór Sigurðsson átti þá hörkuskot sem Vilhelm Þráinn Sigurjónsson blakaði yfir markið.

Vilhelm hélt áfram að bjarga ÍR-ingum á lokamínútunum. Hann varði frá Mikael Mána Þorfinnssyni eftir tvær hornspyrnur Grindavíkur í röð og í uppbótartíma fékk Damir kjörið tækifæri til að tryggja heimamönnum öll stigin, en Vilhelm sá aftur við honum.

Markalaust jafntefli varð því niðurstaðan. Grindavík er í 9. sæti með 14 stig en ÍR er sæti neðar með 13 stig.

Grótta 6 - 1 Ægir
1-0 Nökkvi Már Nökkvason ('12 )
2-0 Mattías Kjeld ('14 )
3-0 Mattías Kjeld ('32 )
4-0 Björgvin Brimi Andrésson ('37 )
5-0 Daníel Karl Þrastarson ('47 , sjálfsmark)
5-1 Daníel Karl Þrastarson ('67 )
6-1 Jónatan Ari Bragason ('71 )
Lestu um leikinn

Grindavík 0 - 0 ÍR
Lestu um leikinn
Vilhelm átti góðan leik í marki ÍR-inga

Vilhelm átti góðan leik í marki ÍR-inga

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding14+2231
2Fylkir14+1230
3HK14+625
4Þróttur R.13+1224
5Grótta14+122
6Vestri14-121
7Njarðvík14+120
8Leiknir R.14019
9Grindavík14-314
10ÍR15-1113
11Völsungur13-168
12Ægir15-238
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.