Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 04. desember 2018 15:00
Magnús Már Einarsson
Mourinho lét leikmenn United heyra það fyrir leik
Erfiðir tímar.
Erfiðir tímar.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Manchester United, hellti sér yfir liðsmenn sína nokkrum klukkutímum fyrir 2-2 jafntefli liðsins gegn Southampton um helgina. The Times segir frá þessu í dag.

Mourinho gerði þetta á liðsfundi á hóteli United liðsins en hann tók nokkra leikmenn fyrir á fundinum.

Eftir leikinn lét hann Paul Pogba heyra það og sagði að franski miðjumaðurinn sé vírus í liðinu. Mourinho er sagður vera ráðþrota hvernig hann á að fá Pogba til að bæta sinn leik.

Samband Mourinho við leikmenn er erfitt í augnablikinu og einn af eldri leikmönnum United segist aldrei hafa kynnst öðru eins á ferli sínum.

Manchester United er í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar en liðið hefur ekki unnið í þremur deildarleikjum í röð. Liðið á heimaleik gegn Arsenal annað kvöld og í kjölfarið annan heimaleik gegn Fulham um helgina.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner