Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 04. desember 2018 22:03
Ívan Guðjón Baldursson
Pólland: Böddi fékk 90 mínútur annan leikinn í röð
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Arka Gdynia 0 - 2 Jagiellonia
0-1 C. Sheridan ('75)
0-2 P. Klimala ('86)
Rautt spjald: A. Deja, Arka Gdynia ('71)

Böðvar Böðvarsson og félagar í Jagiellonia eru komnir í 8-liða úrslit pólska bikarsins eftir góðan sigur gegn tíu leikmönnum Arka Gdynia í dag.

Böðvar, einnig þekktur sem Böddi löpp, var í byrjunarliðinu í annað sinn á fimm dögum eftir að hafa fengið 90 mínútur í deildarleik gegn sömu andstæðingum á föstudaginn.

Þetta eru frábær tíðindi fyrir Böðvar sem hafði hingað til fengið lítið sem ekkert af tækifærum undir stjórn Ireneusz Mamrot.

Jagiellonia er eitt af bestu liðunum í Póllandi og er í þriðja sæti úrvalsdeildarinnar auk þess að vera komið áfram í bikarnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner