James Hill er genginn í raðir Bournemouth frá Fleetwood en kaupverðið er ekki gefið upp.
Hill er 19 ára gamall enskur miðvörður en hann hefur leikið 43 leiki fyrir aðallið Fleetwood í þriðju efstu deild á Englandi.
Hann komst í fréttirnar í nóvember síðastliðnum, þá var sagt frá því að Barcelona hafi sent njósnara á leik Fleetwood til að fylgjast með honum.
Hill var kallaður í u21 árs landslið Englands í nóvember en þurfti að draga sig úr því vegna meiðsla.
Athugasemdir