Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 05. febrúar 2023 12:20
Aksentije Milisic
Chelsea ætlar að bjóða Conor Gallagher nýjan risa samning
Mynd: Getty Images

Samkvæmt fréttum frá Englandi þá ætlar Chelsea að bjóða leikmanni sínum, Conor Gallagher, nýjan risa samning.


Þessi miðjumaður hefur ekki spilað mjög mikið í bláu treyjunni á þessari leiktíð. Hann hefur verið oft á bekknum en hann byrjaði leikinn gegn Fulham á föstudaginn síðasta.

Everton vildi fá leikmanninn undir loks gluggans en hann ákvað að vera eftir hjá Chelsea og berjast fyrir sæti sínu.

Samkvæmt The Sun, þá er Chelsea mjög ánægt með Gallagher og að hann hafi ákveðið að vera áfram hjá liðinu. Chelsea ætlar að bjóða honum nýjan samning og tvöfalda launin hans.

Sagt er að Gallagher fái um 50 þúsund pund á viku hjá Chelsea á núverandi samningi.

Gallagher var flottur í liði Crystal Palace á síðustu leiktíð og þá var hann í leikmannahópi Englands á HM í Katar. Hann fékk hins vegar ekki mínútu á vellinum á því móti.


Athugasemdir
banner
banner