Guðbjörn Smári Birgisson er orðinn nýr leikmaður Víkings á Ólafsvík eftir að hafa skorað 6 mörk í 18 leikjum með Hvíta riddaranum í 4. deildinni í fyrra.
Guðbjörn Smári er 24 ára Mosfellingur sem hefur aldrei fengið að spila keppnisleik fyrir Aftureldingu. Hann hefur verið lykilmaður í liði Hvíta riddarans en nú prófar hann að taka næsta skref.
Víkingur Ó. leikur í 2. deildinni og því mun Guðbjörn Smári stökkva upp um tvær deildir með skiptunum.
Hann hefur spilað með Víkingi Ó. á undirbúningstímabilinu og tókst að hrífa þjálfarateymið sem ákvað að krækja í hann.
„Við viljum bjóða hann velkominn og væntumst mikils af honum í sumar," segir meðal annars í tilkynningu frá Ólsurum.
Athugasemdir
                                                                
                                                        
 
         
         
     
                        
        
         
                    
        
         
                                                                        
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                            
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                    
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                        
                        
        
         
                