05.04.18 - 14:45
Magnús Már Einarsson
Bikarkeppnin verður Mjólkurbikarinn á ný (Staðfest)

Keppt verður um Mjólkurbikarinn í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Guðni, Ari og Stefán eftir undirskriftina ásamt fulltrúum liða sem taka þátt í 1. umferð bikarsins.

Biikarkeppni karla og kvenna mun heita mjólkurbikarinn í sumar en samkomulag þess efnis var tilkynnt í höfuðstöðvum KSÍ í dag. Undanfarin ár hefur bikarinn heitið Borgunarbikarinn en nú fær keppnin nýtt nafn.
Samstarfssamningur KSÍ, Mjólkursamsölunnar og Sýnar var undirritaður af þeim Guðna Bergssyni, formanni KSÍ, Ara Edwald, forstjóra Mjólkursamsölunnar og Stefáni Sigurðssyni, forstjóra Sýnar. Samningurinn er til eins árs til að byrja með en vonast er eftir að hann verði til fleiri ára.

Bikarkeppnin bar nafnið Mjólkurbikarinn frá 1986 til 1996 og nú kemur sama nafn aftur á keppnina. Á sínum tíma fögnuðu leikmenn sigurliðanna í bikarúrslitunum með því að sulla mjólk á hvorn annan.
„Það er okkur mikil ánægja að vera þátttakendur í þessu skemmtilega verkefni sem Bikarkeppni KSÍ er og eiga þátt í því að endurvekja gamla og góða Mjólkurbikarinn sem svo margir minnast með hlýjum huga. Við hlökkum til að fylgjast með æsispennandi keppni í sumar og bíðum spennt eftir að skála í mjólk með verðandi Mjólkurbikarmeisturum í september,\" sagði Ari Edwald, forstjóri Mjólkursamsölunnar.
Guðni Bergsson, formaður KSÍ er ánægður með samninginn. „Ég er mjög ánægður með þennan samning og vænti mikils af samstarfinu milli MS, KSÍ og félaganna. Mjólkursamsalan hefur sterkar rætur í íslensku samfélagi og hefur mikla tengingu við íþróttahreyfinguna. Bikarkeppni KSÍ hét einmitt Mjólkurbikarinn um árabil og eflaust mörg okkar sem muna vel eftir því.“
Mjólkurbikar karla hefst fimmtudaginn 12. apríl með fimm leikjum í karlaflokki en þá mætast Ýmir og KV, Álftanes og Ísbjörninn, ÍR og Ægir, Grótta og Vatnaliljur, Augnablik og Kormákur/Hvöt og loks Berserkir og Reynir S. Alls eru 27 leikir á dagskrá í fyrstu umferð karla sem lýkur laugardaginn 27. apríl. Mjólkurbikar kvenna hefst laugardaginn 5. maí en þá mætast lið Álftaness og Fjölnis á Bessastaðavelli en alls eru níu leikir á dagskrá í fyrstu umferð kvenna sem lýkur mánudaginn 21. maí.
58 ár eru síðan bikarkeppni KSÍ var haldin í fyrsta sinn en það var árið 1960 sem fyrst var keppt um bikarinn og verður spennandi að sjá hvaða lið standa uppi sem sigurvegarar í lok sumars en leikið verður til úrslita í Mjólkurbikar karla í september og í kvenna í ágúst.