05.04.18 - 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Fyrirliði Selfoss framlengir (Staðfest)

Mynd: Selfoss

Mynd: Selfoss

Anna María Friðgeirsdóttir, fyrirliði Selfoss og leikjahæsta knattspyrnukona félagsins frá upphafi, er búin að framlengja samning sinn við félagið til tveggja ára.
Anna María er 26 ára gömul og hefur leikið 215 meistaraflokksleiki fyrir Selfoss.

Anna María tók við fyrirliðabandinu síðasta sumar og spilaði alla leiki liðsins sem fór beint aftur upp í Pepsi-deildina eftir að hafa fallið sumarið 2016. Hún var valin í úrvalslið 1. deildarinnar hér á Fótbolta.net.
„Það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að Anna María hafi framlengt samninginn sinn um tvö ár,\" segir Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari kvennaliðs Selfoss.
„Hún er einn af stóru póstunum í þessu liði okkar og heldur hópnum saman. Hún hefur mikla reynslu úr efstu deild og það er frábært fyrir félagið að njóta krafta hennar áfram.\"