Fotbolti.net
05.04.18 - 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Gattuso framlengir til 2021 (Staðfest)

Arsenal sló Milan út í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

Arsenal sló Milan út í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

Canon

Mynd: Getty Images

Gennaro Ivan Gattuso er búinn að framlengja samning sinn við AC Milan til þriggja ára og er nú bundinn félaginu þar til í júní 2021.

Gattuso tók við Milan í miðri krísu í desember og hefur gert ótrúlega góða hluti fyrir félagið, sem er átta stigum frá meistaradeildarsæti þegar átta umferðir eru eftir.
Undir stjórn Gattuso hefur Milan aðeins tapað þremur deildarleikjum af sextán og er komið í úrslitaleik ítalska bikarsins.

„Ég er virkilega stoltur að vera við stjórnvölinn hjá mínu uppáhalds félagi næstu árin,\" sagði Gattuso.

„Markmiðið er að halda heiðri Milan á lofti í öllum keppnum og vil ég þakka stjórnendum fyrir traustið sem mér var gefið. Þá vil ég þakka strákunum fyrir baráttuna og metnaðinn sem þeir leggja í starf sitt fyrir félagið.

„Áfram Milan!\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.