Fotbolti.net
05.04.18 - 13:30
Elvar Geir Magnússon

Jose Dominguez í Aftureldingu (Staðfest)

Jose Dominguez í Aftureldingu (Staðfest)
Canon

Mynd: Raggi Óla

Afturelding hefur fengið Jose Dominguez til liðs við sig fyrir átökin í 2. deildinni í sumar en þetta kemur fram á Facebook síðu félagsins.

Jose er 25 ára gamall en hann getur spilað í vörninni og á miðjunni.
Jose hefur hefur lengst af á ferlinum spilað í spænsku D-deildinni en þar lék hann með Real Aviles í vetur.

Hann spilaði einnig með Manchester 62 í úrvalsdeildinni á Gíbraltar á þarsíðasta tímabili.

„Jose er væntanlegur til landsins í næstu viku og bjóðum við hann velkominn til félagsins,\" segir á Facebook síðu Aftureldingar.

Afturelding hefur leiki í 2. deildinni þann 5. maí þegar liðið heimsækir Völsung.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.