Fotbolti.net
05.04.18 - 14:41
Magnús Már Einarsson

Viðar Ari í FH (Staðfest)

Viðar Ari í FH (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH hefur fengið bakvörðinn Viðar Ara Jónsson í sínar raðir á láni frá Brann í Noregi. Lánssamningurinn gildir til 23. júlí næstkomandi.
Viðar Ari er 24 ára gamall en hann kom til Brann frá Fjölni fyrir síðasta tímabil. Hann mun nú leika með FH fyrri hluta sumars að minnsta kosti.

Skoski miðjumaðurinn Robbie Crawford hefur talsvert leyst stöðu hægri bakvarðar í vetur en franski bakvörðurinn Cé­dric D\'Uli­vo er ennþá að jafna sig eftir að hafa slitið krossband i fyrra.

Viðar verður hjá FH fram í júlí en Cédric ætti að vera klár í slaginn á þeim tíma.

Miklar breytingar eru á vörn FH síðan í fyrra. Miðverðirnir Kassim Doumbia og Bergsveinn Ólafsson eru báðir farnir frá FH síðan á síðasta tímabili sem og vinstri bakvörðurinn Böðvar Böðvarsson. Guðmundur Karl Guðmundsson, sem spilaði talsvert í hægri bakverði, er líka farinn auk þess sem bakvörðurinn Jón Ragnar Jónsson hefur lagt skóna á hilluna.

FH mætir Stjörnunni í æfingaleik í Kórnum í kvöld en liðið leikur einnig æfingaleiki við Selfoss, Leikni R. og ÍBV áður en kemur að fyrsta leik í Pepsi-deildinni gegn Grindavík þann 28. apríl.

Komnir:
Edigerson Gomes Almeida frá Henan Jianye á láni
Geoffrey Castillion frá Víkingi R.
Guðmundur Kristjánsson frá Start
Hjörtur Logi Valgarðsson frá Örebro
Kristinn Steindórsson frá GIF Sundsvall
Viðar Ari Jónsson frá Brann á láni
Zeiko Lewis frá Bandaríkjunum

Farnir:
Böðvar Böðvarsson til Jagiellonia Białystok (Pólland)
Bergsveinn Ólafsson í Fjölni
Emil Pálsson til Sandefjord
Guðmundur Karl Guðmundsson í Fjölni
Jón Ragnar Jónsson hættur
Kassim Doumbia til Maribor
Matija Dvornekovic

Viðar Ari Jónsson er genginn í raðir FH á lánsamning frá norska félaginu Brann. Við bjóðum Viðar Ara velkominn í Kaplakrika. #ViðerumFH #fotboltinet pic.twitter.com/9pdLnj8oBZ

— FHingar.net (@fhingar) April 5, 2018

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.