,,Ég er hrikalega sáttur. Við spiluðum vel á móti góðu Þórsliði og ég get ekki verið annað en sáttur," sagði Árni Vilhjálmsson eftir 4-1 sigur Breiðabliks á Þórs í dag.
Árni skoraði tvívegis í dag og opnaði um leið markareikning sinn í sumar.
,,Þetta er það sem Gummi Ben og Óli þjálfarar hafa verið að tala um við okkur senterana, að það skipti ekki máli hvernig maður skorar heldur bara að setja hann inn."
Árni fagnaði öðru marki sínu með því að leika DJ eins og Emile Heskey gerði oft á sínum tíma.
,,Þetta var beiðni frá félaga mínum, frá meistara Jóhanni Fannari. Hann bað mig að taka Heskey ef ég myndi skora og ég mundi eftir því seinna markinu."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.






















