Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 05. maí 2021 22:20
Ívan Guðjón Baldursson
Tuchel: Áttum að skora mun fyrr
Mynd: Getty Images
Thomas Tuchel var kátur eftir 2-0 sigur Chelsea gegn Real Madrid í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

Chelsea verðskuldaði sigurinn fyllilega og hefði getað unnið stærra.

„Strákarnir áttu skilið að vinna þennan leik. Þetta var erfitt í fyrri hálfleik en við stjórnuðum seinni hálfleiknum og áttum að skora annað markið mun fyrr," sagði Tuchel að leikslokum.

„Þetta er ekki stund fyrir gagnrýni. Þetta er frábært afrek hjá liðinu og strákarnir eiga hrós skilið. Þetta var stórkostleg frammistaða þar sem leikmenn gerðu ótrúlega vel að halda fullkominni einbeitingu gegn liði eins og Real sem getur skorað hvenær sem er upp úr þurru."

Tuchel hrósaði markverðinum Edouard Mendy að leikslokum og það gerði Cesar Azpilicueta einnig. Mendy varði frábærlega í fyrri hálfleik og hélt hreinu gegn Karim Benzema og félögum.

„Ég get ekki lýst því hvernig mér líður. Þetta var stórkostleg frammistaða hjá okkur, við hefðum getað skorað fimm," sagði Mason Mount að leikslokum.
Athugasemdir
banner