Ægir hefur fengið fjóra leikmenn á láni fyrir tímabilið sem er að fara af stað núna um helgina.
Viktor Marel Kjærnested og Patryk Hryniewicki koma á láni frá Leikni Reykjavík.
„Viktor er kraftmikill og áræðinn sóknarmaður. Patryk er stór og stæðilegur varnarmaður og bindum við vonir við þessa spennandi leikmenn," segir í tilkynningu frá Ægi.
„Einnig höfum við aftur fengið kantmanninn Sigurð Óla Guðjónsson og fjölhæfa varnar og miðjumanninn Anton Breka Viktorsson á láni frá Selfyssingum en þeir léku einnig með okkur á síðasta tímabili og hjálpuðu okkur að vinna 4. deildina."
Ægir spilar í 3. deildinni í sumar en liðið mætir Þrótti Vogum í fyrstu umferð Mjólkurbikarsins á morgun.
Athugasemdir