PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   fös 05. júní 2026 15:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mielec
Tvær með Íslendingstengingu byrja hjá Úkraínu
Eimskip
Anna Petryk fyrir leik með Breiðabliki.
Anna Petryk fyrir leik með Breiðabliki.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Núna klukkan 16:00 hefst leikur Íslands og Úkraínu í undankeppni HM 2027.

Það er athyglisvert að í byrjunarliði Úkraínu eru tveir leikmenn sem eru með Íslandstengingu.

Það er í fyrsta lagi leikmaður númer 3 hjá Úkraínu, Anna Petryk. Hún kom til Breiðabliks árið 2022 eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu. Þessi 28 ára gamli miðjumaður lék í eitt sumar á Íslandi en sneri síðan aftur heim í úkraínsku deildina.

Lestu um leikinn: Úkraína 0 -  0 Ísland

Svo er leikmaður númer 9 hjá Úkraínu, Tanya Boychuk, einnig með tengingu við Ísland því hún lék með Þrótti Reykjavík sumarið 2023. Boychuk er fædd og uppalin í Kanada en á ættir að rekja til Úkraínu og spilaði sína fyrstu landsleiki fyrir þjóðina fyrr á þessu ári.
Slapp
banner
banner
banner