05.07.12 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Matt Mills til Bolton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Bolton Wanderers hefur fengið enska varnarmanninn Matt Mills til liðs við sig frá Leicester City.
Mills, sem er 25 ára gamall, var ekki í náðinni hjá Nigel Pearson, stjóra Leicester síðari hluta síðasta tímabils og ákvað því leikmaðurinn að leita á önnur mið í sumar, en hann kom til Leicester frá Reading fyrir 5 milljónir punda síðasta sumar.
Hann hefur nú samið við Bolton, sem að féll úr ensku úrvalsdeildinni, en hann gerði þriggja ára samning við Bolton.
Hann er annar leikmaðurinn sem að Owen Coyle, stjóri Bolton, færi til félagsins, en hann fékk einnig írska landsliðsmanninn Keith Andrews á frjálsri sölu á dögunum.

Heimild: Goal.com