Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 05. júlí 2022 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Herzogenaurach
Myndir sem sýna sterku liðsheildina sem er í íslenska liðinu
Icelandair
Þegar Berglind skoraði.
Þegar Berglind skoraði.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir gerði stórkostlega í aðdraganda fyrsta marksins gegn Póllandi í æfingaleik á dögunum.

Hún vann boltann hátt á vellinum og kom honum svo á Berglindi Björg Þorvaldsdóttur, sem skoraði auðveldlega.

Það er nokkuð gaman að skoða myndirnar sem Hafliði Breiðfjörð tók eftir að markið kom því þá liggur Gunnhildur í jörðinni en leikmenn íslenska liðsins fara beint að henni til að fagna markinu.

„Ég nennti ekki að standa upp,” sagði Gunnhildur létt á æfingu í gær þegar hún var spurð út í þetta mark.

„Ég bjóst ekki við því að markmaðurinn myndi taka mig svona út. Ég var bara að horfa á Berglindi. Svo lendir markvörðurinn á mér. Ég bjóst ekki við þessu. Ég nennti ekki að standa upp alveg strax og vildi að þær myndu koma að fagna með mér. Nei, ég segi svona.”

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar skemmtilegar myndir af markinu sem sýna hversu góð liðsheildin í íslenska liðinu er. Einnig er hægt að sjá viðtalið við Gunnhildi þar sem hún fer yfir hlutverk sitt gegn Póllandi.

Sjá einnig:
Seinni hálfleikur sem Klopp og Rangnick væru stoltir af
Gunnhildur alls ekki svekkt - „Mun alltaf gefa henni bandið"
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner