Fotbolti.net
20.09.26 - 20:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Óli Skúla: Skrítið að fara í þriggja vikna pásu

Auglýsing
Óli Skúla: Skrítið að fara í þriggja vikna pásu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Breiðablik tapaði gegn ÍA í dag. Breiðablik og ÍA eru með jafn mörg stig í 4. og 5. sæti og ljóst að liðin munu enda í þeim sætum. Fótbolti.net ræddi við Ólaf Inga Skúlason, þjálfara Breiðabliks, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: ÍA 4 - 1 Breiðablik
„Það er alltaf eitthvað undir. Það eru þrjú stig í boði og við erum að keppa við ÍA um fjórða sætið. Við viljum spila eins vel og við getum fyrir félagið. Svo erum við að koma inn í þriðja leikinn á níu dögum. Það er búið að vera mikið álag, við verðum að horfa í orkuna hjá okkur. Við erum hálfu skrefi út um allt. Þá lengist í liðinu og þetta verður alltaf erfitt," sagði Óli.

Það er komin þriggja vikna landsleikjapása. Ólafur Ingi var spurður út í hana.

„Það má segja að þetta sé svolítið langur tími. Þetta er bara partur af þessu, það er ekki hægt að kvarta yfir því. Við njótum góðs af því, náum aðeins að hvíla okkur og keyra okkur upp fyrir síðustu þrjá leikina," sagði Óli.

Þá hefur mótafyrirkomulagið verið mikið í umræðunni. Margir ósáttir við það og einhverjir hafa talað um að breyta í 14 liða deild.

„Mér finnst fyrirkomulagið á deildinni mjög gott. Mér finnst þessi tvískipting skemmtileg. Það hefur undanfarin ár eitthvað verið undir. Í fyrra spiluðum við í síðustu umferð á móti Stjörnunni í leik um þriðja sætið. Þú lendir líka í því í venjulegu deildarfyrirkomulagi að það séu leikir sem skipta ekki máli. Það er spenna niðri líka, ég hef ekki yfir neinu að kvarta. Það er skrítið að fara í þriggja vikna pásu og eiga þrjá leiki eftir. Því miður er það staðan sem er komin upp. Mér finnst ekkert að uppsetningunni," sagði Óli

„Það eru kannski fjórir til fimm leikir eftir og þú ert með fimm til sex lið sem eru ekki að spila að neinu. Það getur alveg orðið staðan í 14 liða deild eins og í úrslitakeppni. Þetta eru allt plúsar og mínusar, ég fagnað því að við séum að spila fleiri leiki. Það er það sem skiptir mestu máli, að lengja tímabilið og við séum ekki í löngu undirbúningstímabili."

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.24+5059
2KR24+2847
3Fram24+1246
4Breiðablik24+133
5ÍA24-333
6Keflavík24-829
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.