Miðjumaðurinn James Maddison og varnarmaðurinn Wesley Fofana hjá Leicester eru eftirsóttir af öðrum félögum.
Newcastle United gerði sitt annað tilboð í Maddison í þessari viku og þá er Leicester sagt hafa hafnað tilboði frá Chelsea í Fofana.
Newcastle United gerði sitt annað tilboð í Maddison í þessari viku og þá er Leicester sagt hafa hafnað tilboði frá Chelsea í Fofana.
„Þessir leikmenn eru ekki til sölu, þú vilt ekki missa bestu leikmennina þína," segir Rodgers.
„James og Welsey eru að æfa vel og gera sig klára fyrir leikinn okkar á sunnudaginn."
Leicester leikur á sunnudaginn gegn Brentford í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Í dag greindi félagið frá því að Ricardo Pereira yrði lengi frá vegna meiðsla. Þá verður vængmaðurinn Harvey Barnes frá í nokkrar vikur vegna smávægilegra hnémeiðsla.
Athugasemdir