Fotbolti.net
05.09.26 - 18:13
Hafþór Örn Laursen

Pablo Punyed: Ég er ekki búinn að ákveða mig

Auglýsing
Pablo Punyed, spilandi aðstoðarþjálfari Hauka

Pablo Punyed, spilandi aðstoðarþjálfari Hauka

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er þreyttur eftir leikinn, en þrátt fyrir tap og að vera manni færri helminginn af leiknum þá er ég sáttur með strákana og karakterinn sem við sýndum í dag'', sagði Pablo Punyed, spilandi aðstoðarþjálfari Hauka, 1-2 tapleik gegn Selfossi. Fréttaritari Fótbolti.net náði á honum eftir fagnaðarlætin.
Lestu um leikinn: Haukar 1 - 2 Selfoss
„Selfoss spilaði sinn leik vel og þeir eru að spila fyrir mikið meira í næstu umferð''.

Pablo spilaði allan leikinn og fékk á sig gult spjald.

„Mér fannst ég spila ágætlega. Það er erfitt þegar það er mikið af truflunum fyrir og eftir leik, en stóra markmiðinu, að vinna deildina, er náð.''

Haukar hafa ekki spilað í Lengjudeildinni síðan 2019, og munu því spila þar næsta sumar. Er liðið komið á þann stað sem það á heima?

Klárlega. Þetta lið er það stórt að það á að vera í það minnsta í Lengjudeildinni. Það er partur af vegferðinni sem við erum að fara í ''.

Pablo Punyed er eins og kemur fram spilandi aðstoðarþjálfari Hauka, en mun hann spila næsta sumar líka?

„Ég er bara ekki búinn að taka ákvörðun um það ennþá. Ég ætla taka mér gott frí núna og hugsa þetta aðeins, vera með fjölskyldunni og sakna fótboltans aðeins meira, svo kemur þetta bara.''

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.