Fotbolti.net
05.09.26 - 17:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Besta deild kvenna: Magnaður viðsnúningur í Eyjum

Taylor Marie Hamlett

Taylor Marie Hamlett

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
ÍBV 2 - 3 Fram
1-0 Allison Patricia Clark ('7 )
2-0 Allison Grace Lowrey ('12 )
2-1 Hildur María Jónasdóttir ('28 )
2-2 Brookelynn Paige Entz ('48 )
2-3 Taylor Marie Hamlett ('59 )
Lestu um leikinn
ÍBV fékk Fram í heimsókn í lokaumferð Bestu deildar kvenna í dag. Eyjakonur komust yfir snemma leiks þegar Allison Patricia Clark skoraði eftir klafs í teignum.

Allison Grace Lowrey bætti öðru markinu við stuttu síðar eftir sendingu frá nöfnu sinni Allison Clark. Clark var nálægt því að bæta við þriðja markinu en Ashley Orkus í marki Fram varði vel frá henni.

Fram minnkaði muninn þegar Hildur María Jónasdóttir skoraði með góðu skoti. Liðið jafnaði síðan metin þegar Brookelynn Paige Entz skoraði með glæsilegu skoti í fjærhornið.

Fram var ekki búið að segja sitt síðasta því Taylor Marie Hamlett kom liðinu yfir og tryggði Fram sigurinn. Magnaður endurkomusigur hjá Fram.

Fram verður í neðri hlutanum þegar deildin skiptist. Liðið er sem stendur í 7. sæti með 22 stig og er fimm stigum frá fallsæti en ÍBV er í 3. sæti með 27 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.