Fotbolti.net
05.09.26 - 17:18
Haraldur Örn Haraldsson

Jóhann Birnir: Urðum að gera þetta aðeins erfitt fyrir okkur í lokin

Auglýsing
Jóhann Birnir: Urðum að gera þetta aðeins erfitt fyrir okkur í lokin
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Lengjudeildin

„Það er léttir að hafa klárað þetta, og klárað þetta sjálfir. Það er ennþá betri tilfinning heldur en að vera stóla á aðra," sagði Jóhann Birnir Guðmundsson þjálfari ÍR eftir 3-2 sigur gegn Leikni sem gulltryggði áframhaldandi veru þeirra í Lengjudeildinni.

Lestu um leikinn: ÍR 3 - 2 Leiknir R.

ÍR-ingar voru mjög sterkir í fyrri hálfleik þar sem þeir komust í 3-0 og það reyndist nóg til að klára leikinn.

„Ótrúlega ánægður með strákana hvernig þeir komu inn í leikinn af krafti. Það var það sem við ætluðum okkur að gera og við vorum bara þéttir og grimmir þegar við sóttum, hefðum getað skorað fleiri mörk í fyrri hálfleik. Síðan urðum við náttúrulega að gera þetta aðeins erfitt fyrir okkur í lokin," sagði Jóhann.

Leiknismenn náðu að minnka muninn í 3-2 í seinni hálfleik og gerðu þetta spennandi í lokin.

„Það eru nú ekki margir í okkar liði sem eru vanir að spila svona leiki. Auðvitað hefur það eitthvað að segja, þú ert með eitthvað í hendi og ferð að verja það. Þetta er bara týpískt í fótbolta. Við stóðum þetta af okkur og menn lögðu allt í þetta," sagði Jóhann.

Markmið ÍR var líkast til ekki að þurfa að bjarga sér á loka leiknum en þrátt fyrir það sér Jóhann ýmsa hluti sem hægt er að byggja á eftir þetta tímabil.

„Við missum náttúrulega reynslumikla menn fyrir tímabil, margir sem voru í stóru hlutverki. Þannig að það eru margir leikmenn hjá okkur sem taka mikið frá þessu tímabili," sagði Jóhann.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.