Fotbolti.net
05.09.26 - 15:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið Keflavíkur og Vals: Tveir fæddir 2012 á bekknum

Fyrsta sinn í hóp síðan í maí

Breki Baxter seldur til Noregs.

Breki Baxter seldur til Noregs.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Klukkan 16:30 hefst fyrsti leikur 22. umferðar Bestu deildarinnar þegar Keflavíkur tekur á móti Val á HS Orku vellinum í Keflavík. Leikurinn er hluti af Ljósanótt sem nær hámarki í kvöld.

Liðin sitja í 5. og 8. sæti deildarinnar og er Keflavík með fjórum stigum meira en Valur. Keflavík tryggir sig í efri hlutann með sigri og Valur verður að vinna til að eiga möguleika á því að enda í efri hlutanum.
Rýnt í 22. umferðina - Fjögur lið berjast um sæti í efri hluta
TENGT EFNI

Rýnt í 22. umferðina - Fjögur lið berjast um sæti í efri hluta

Lestu um leikinn: Keflavík 0 - 0 Valur
Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, gerir eina breytingu frá tapinu gegn FH. Þorlákur Breki Baxter var seldur til Egersund og inn kemur Dagur Ingi Valsson. Baldur Logi Guðlaugsson er ekki í leikmannahópi Keflavíkur í dag en tveir fæddir 2012 eru á bekknum hjá Keflavík. Það eru þeir Viktor Nóel Sveinsson og Younes Ahmed Amrouni. Þá er Hafþór Davíðsson fæddur 2011 og Emil Gauti Haraldsson er fæddur 2009.

Chris Brazell, þjálfari Vals, gerir eina breytingu frá jafnteflinu gegn ÍA. Tryggvi Hrafn Haraldsson snýr til baka úr leikbanni og kemur inn fyrir Birki Heimisson sem er ekki í hópnum í dag. Myles Veldman og Orri Sigurður Ómarsson snúa aftur í hóp Vals. Pétur Eiríksson, fæddur 2010, er á meðal varamanna Vals. Fyrirliðinn Hólmar Örn Eyjólfsson er ekki í hóp annan leikinn í röð.

Emil Alexander Larsen, markmannsþjálfari Vals, er ekki á skýrslu í dag eftir að hafa fengið rautt spjald fyrir mótmæli undir lok leiks gegn ÍA.

Byrjunarlið Keflavík

  • 1. Ásgeir Orri Magnússon (m)
  • 3. Axel Ingi Jóhannesson
  • 4. Ígnacio Heras Anglada
  • 6. Sindri Snær Magnússon (f)
  • 7. Dagur Ingi Valsson
  • 10. Stefan Alexander Ljubicic
  • 11. Muhamed Alghoul
  • 20. Marin Brigic
  • 21. Alpha Conteh
  • 22. Ásgeir Páll Magnússon
  • 23. Eiður Orri Ragnarsson

Byrjunarlið Valur

  • 1. Frederik August Albrecht Schram (m)
  • 3. Hörður Ingi Gunnarsson
  • 4. Markus Lund Nakkim
  • 5. Kristófer Dagur Arnarsson
  • 7. Samúel Kári Friðjónsson
  • 9. Patrick Pedersen
  • 10. Jónatan Ingi Jónsson (f)
  • 12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
  • 17. Lúkas Logi Heimisson
  • 19. Dagur Orri Garðarsson
  • 21. Jakob Franz Pálsson
Tryggvi Hrafn snýr aftur eftir leikbann.

Tryggvi Hrafn snýr aftur eftir leikbann.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Orri Sigurður í hóp í fyrsta sinn síðan í maí.

Orri Sigurður í hóp í fyrsta sinn síðan í maí.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dagur Ingi snýr aftur í lið Keflavíkur.

Dagur Ingi snýr aftur í lið Keflavíkur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Birkir Heimisson ekki með í dag.

Birkir Heimisson ekki með í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.21+4652
2KR21+2744
3Fram21+1444
4Breiðablik21+330
5Keflavík21-428
6ÍA21-427
7Stjarnan21-827
8Valur21-724
9FH21-1121
10Þór21-2918
11ÍBV21-1317
12KA21-1417
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.