Sænski sóknarmaðurinn Zlatan Ibrahimovic mun ekki ganga í raðir AC Milan. Fjölmiðlar í Svíþjóð segja að fjölskylda hans vilji frekar vera áfram í Bandaríkjunum.
Zlatan hefur verið orðaður við endurkomu til AC Milan og sagt að samkomulag hafi náðst um sex mánaða samning. Það virðist hinsvegar úr sögunni núna.
Expressen segir að eiginkona leikmannsins og synir þeirra tveir séu mjög ánægð í Los Angeles þar sem Zlatan spilar fyrir LA Galaxy.

LA Galaxy hyggst hækka Zlatan um launaflokk næsta sunnudag en þrátt fyrir góða frammistöðu hans þá tókst liðinu ekki að komast í úrslitakeppni bandarísku MLS-deildarinnar.
Athugasemdir