Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 06. mars 2020 17:00
Magnús Már Einarsson
Shelvey og Ritchie framlengja við Newcastle
Jonjo Shelvey.
Jonjo Shelvey.
Mynd: Getty Images
Jonjo Shelvey og Matt Ritchie hafa báðir skrifað undir nýja samninga við Newcastle sem gilda til ársins 2023.

Shelvey er 28 ára miðjumaður sem kom til Newcastle árið 2016 eftir að hafa áður spilað með Liverpool og Newcastle.

„Mér líður eins og heima. Fólkið hér hefur boðið mig svo velkomið síðan ég kom hingað," sagði Shelvey.

Ritchie er þrítugur en hann kom til Newcastle frá Bournemouth árið 2016.

„Síðan ég kom til félagsins hefur gengið vel og ég vil halda áfram að taka þátt í því," sagði Ritchie.
Athugasemdir
banner
banner