06.04.18 - 20:30
Ingólfur Stefánsson
Axel Freyr í Gróttu (Staðfest)

Mynd: Fram

Mynd: Fram
Miðju- og kantmaðurinn Axel Freyr Harðarson er genginn til liðs við Gróttu frá Fram.
Axel sem er fæddur árið 1999 spilaði 15 leiki með Fram í Inkasso deildinni síðasta sumar og skoraði 1 mark.
Hann mun leika með Gróttu í 2. deildinni í sumar en liðið féll úr Inkasso deildinni í fyrra.
Axel mun mögulega spila sinn fyrsta leik fyrir Gróttu þegar liðið mætir Völsungi/KF í undanúrslitum B deildar Lengjubikarsins 8. apríl.